Golf á Álandseyjum 8 daga ferð

8 daga golfferð til Álandseyja, á besta golfvelli í Finnlandi. Þrír golfvellir

8 daga golfferð til Álandseyja, á besta golfvelli í Finnlandi. Þrír golfvellir

No H4 headings found on this page

🌾 Golf á Álandseyjum 2026

  • Dagsetningar: 10. – 17. september 2026 (8 dagar, þar af 6 golfdagar)

  • Viðburður: 4 golfhringir á fallegu Kastelholm vellinum (tveir 18 hóla brautir) og einn hringur á Eckeröbanan 11., 12., 13., 14., 15. og 16. sept.

Skoðaðu líka 5 daga ferð: Ferðalýsingar 5 daga ferð


 

Golfferð til Álandseyja 10.-17. september 2026

Við bjóðum nú í fyrsta sinn lúxusgolfferð til Álandseyja þar sem spilað verður á hinum frábæra Kastelholm golfvelli í fallegu umhverfi kastala og skerjagarðs. Einn dagur er svo spilað á Eckerö Golf. Einstök fegurð Álandseyja er umtöluð og gestrisni þessarar vinaþjóðar er einstök. Golfvöllurinn býður upp á tvo 18 holu velli, Slottsbanan og Kungsbanan, en svo líka á Eckerö Golf. Spilað verður samtals sex daga, 18 holur hvern dag. Þessir vellir eru lofaðir fyrir gæði og teljast meðal þeirra bestu í Finnlandi.

Gist verður á Arkipelag sem er flott fjögurra stjörnu hótel í Maríuhöfn og eru máltíðir samkvæmt ferðalýsingum. Rúta er frá hóteli á golfvöllinn og er hádegismatur og léttir drykkir innifaldir í golfskálanum. Hægt er að leigja tveggja manna golfbíla.

Nánari ferðatilhögun.

Flug með Icelandair þann 10. september frá Keflavík til Stokkhólms
Rúta til miðborgar Stokkhólms
Siglt með lúxusferjunni Gabriellu um stórbrotinn skerjagarðinn við Stokkhólm og til Maríuhafnar.
Kvöldverður um borð með víni og/eða bjór úr krana. Tax-free verslun um borð og notalegt umhverfi
Komið er til Maríuhafnar rétt fyrir miðnætti og farið beint á Hótel Arkipelag.
11.-16. september er spilað golf, 18 holur hvern dag
Flug með Icelandair þann 17. september frá Stokkhólmi til Keflavíkur

 Gríptu þetta einstaka tækifæri til að heimsækja vinaþjóð okkar á Álandseyjum, sigla um stórkostlegan skerjagarð Stokkhólms og spila golf á tveimur frábærum völlum.

Verð 459.000 kr. (2 saman í herbergi) – allt innifalið (ferðir, máltíðir samkvæmt ferðalýsingum og vallargjald, gjöld fyrir golfbag í fluginu). Íslensk fararstjórn. Með gistingu i eins manns herbergi er verðið 591.000 kr.
Það er hægt að panta golfbíl (fyrir tvo) á 55€ á dag og hring. Greiðist í golfskálanum við komuna þangað.

Fyrir ferðafélagar sem spila ekki golf er verðið 364.500 kr. miðað við 2 saman í herbergi.

Upplýsingar um golfvöllinn www.eckerogolf.ax

Upplýsingar um hótelið www.hotellarkipelag.ax/en

 

Alandia Travel Service


 Ferðalýsingar:

Fimmtudagur 10/9 (1. dagur)


✈️ Ferðadagur 1 – Brottför og komutími til Álandseyja

  • Kl. 07:35 – Brottför frá Keflavík með Icelandair til Stokkhólms (Arlanda)

  • Rúta bíður á flugvellinum og ekur hópinn til Stokkhólms

    • Ef tími leyfir: Stutt borgarskoðunarferð í Stokkhólmi

  • Sigling til Maríuhafnar með glæsiskipi

    • Um borð: Kvöldverður (hlaðborð) með drykkjum (gos, bjór, léttvín)

    • Rútan fylgir hópnum alla leið og farangur geymdur í rútunni

  • Komutími til Álandseyja: Rétt fyrir miðnætti á staðartíma

  • Innritun á Hótel Arkipelag í Maríuhöfn

Hótel Arkipelag er 4* hótel í miðbæ Maríuhafnar og er með veitingahús, næturklúbbi, sauna og sundlaug. Öll okkar herbergi er með útsýni yfir smábátahöfnin og ströndina. 

 8. DAGA FERÐIN

Föstudagur 11/9 (2. dagur)

Rútan sækir okkur eftir morgunmat og við förum í stutta skoðunarferð í borginni og nágrenni áður en rútan ekur okkur að golfvellinum í Kastelholm. Þar tékkum við okkur inn, en sneiðum hádegisverð áður en leikurinn hefst.
Frá kl. 12:30 erum við með golftíma kl. 12:30/ 12:40/ 12:50/ 13:00 /13:10. Ein golfumferð er 18 hólur ca. 4,5 klst.
Þegar við komum til baka til Maríuhafnar er frjáls tími til að skoða miðborgina. Á hótelinu stendur okkur til boða að fara í sauna og sundlaug á hótelinu milli kl. 17 og 19.
Um kvöldið sneiðum við kvöldverð á hótelinu. 

Laugardagur 12/9 (3. dagur)

 Eftir morgunmat halda golfævintýrunum áfram og við erum með golftímar fráteknir kl. 10:00 – 10:50. Eftir að golfhringnum hefur verið klárað verður hádegisverður ca. kl. 15 á golfveitingastaðnum.
Við komum til baka á hótelið um kl. 17 og þá er aftur möguleiki að fara í sauna og sundlaug á hótelinu.
Þar á eftir frjáls tími og kvöldmatur á eigin vegum.

 Sunnudagur 13/9 (4. dagur)

Eftir morgunmat förum við í þriðja skiptið að golfvellinum frá hótelinu erum með golftímar fráteknir kl. 09:30 – 10:20 (á tíu mínútna fresti). Eftir að golfhringnum hefur verið klárað verður hádegisverður ca. kl. 14:30 á golfveitingastaðnum. Við komum aftur á hótelið um kl. 16:30.

Milli kl. 17 og 19 er hægt að fara í saunu og sund á hótelinu, sem er í boði fyrir hótelgesti.
Kvöldverður á eigin vegum.

Mánudagur 14/9 (5. dagur)

Eftir morgunmat förum við af stað ca. kl. 10:30.
Hádegisverður kl. 11:00 á veitingahúsinu á golfvellinum. Golfleikurinn hefst upp úr hádegi.

Milli kl. 17 og 19 er hægt að fara í saunu og sund á hótelinu, sem er í boði fyrir hótelgesti.
Kvöldverður á eigin vegum.

Þriðjudagur 15/9 (6. dagur)

Þennan dag förum við á annan golfvöll (Eckerö Golf) eftir morgunmat. Brottför kl. 09:00. Golf hefst kl. 10:00.
Ca. kl. 14:30 hádegisverður á veitingahúsinu á golfvellinum í Eckerö.

Milli kl. 17 og 19 er hægt að fara í saunu og sund á hótelinu, sem er í boði fyrir hótelgesti.
Kvöldverður á eigin vegum.

Miðvikudagur 16/9 (7. dagur)

Lokadagurinn í golfinu. Við spilum aftur í Kastelholm á "Kungsbanan". Hefst kl. 10.
Hádegismatur ca. kl. 15:00 á veitingahúsinu á golfvellinum. Þar á eftir með rútu til baka til hótelsins.

Milli kl. 17 og 19 er hægt að fara í saunu og sund á hótelinu, sem er í boði fyrir hótelgesti.

Kl. 19 verður kveðjukvöldverður á veitingahús rétt hjá hótelinu. Drykkir innifaldir.

Fimmtudagur 17/9 (8. dagur)

 Heimfarardagur. Við gætum fengið eitthvað smá í morgunmat á hótelinu, en við borðum svo alvöru morgunmat á ferjunni. Brottför frá hótelinu kl. 07:00 með rútu sem ekur okkur til ferjuhafnarinnar í Berghamn. Ferjan fer af stað kl. 8 og við förum beint upp í morgunverðarhlaðborð í ferjunni. Eftir 2ja tíma sigling komum við til Grisslehamn í Svíþjóð kl. 9 á sænskum tíma. Rútan fer með okkur til Arlanda og flugvélin fer í loftið kl. 13:50. Við lendum í Keflavík kl. 14:40.

Verð 459.000 kr. (2 saman í herbergi) – mikið innifalið (ferðir, fæði samkvæmt ferðalýsingum og vallargjald, gjöld fyrir golfbag í fluginu). Íslensk fararstjórn. Verð i eins manns herbergi er 558.000 kr.
Fyrir ferðafélagar sem spila ekki golf er verðið 364.500 kr. miðað við 2 saman í herbergi.


40.000 kr. á mann greiðist við bókun og afgangurinn fyrir 10.7.2026.
Verðið er miðað við gengið í janúar 2026. Við gengisbreyting > 5% er verðið með fyrirvara um gengisleiðréttingu á útistandandi upphæð.
Við afbókun fyrir 1.7.2026 endurgreiðist staðfestingargjaldið og allt sem hefur verið greitt inn á ferðina, nema 10.000 kr. sem er haldið eftir fyrir umsýslukostnað. Eftir 1.7.2026 fæst ekkert endurgreitt. Mælt með að ferðalangar hafa ferðatryggingu til að dekka ferðakostnað við forfall með stuttumí  fyrirvara.  

Innifalið:

Flug með Icelandair frá Keflavík til Stokkhólms (Arlanda) og til baka.
Rútuferð frá Arlanda, útsýnisferð um Stokkhólm, akstur til hafnarinnar í Stokkhólmi og með ferju til Álandseyja. Rútan fylgir okkur alla leið og farangurinn má vera í rútunni allan tímann. Kvöldverðarhlaðborð í ferjunni m/s Gabriella með drykki. Siglingin er ca. 5,5 klst. í stóru og flottu skipi. Tax free sala á áfengi, snyrtivörur og fleira.
Gisting á 4**** hótelinu Arkipelag í Maríuhöfn, fjórar nætur með morgunmat. Frítt í sauna og sundlaug fyrir hótelgesti milli kl. 17 og 19.
Golfgjöld í sex daga. Það er hægt að panta golfbíl (fyrir tvo) á 55€ á dag og hring. Greiðist í golfskálanum við komuna þangað.
Rútuferðir á Álandseyjum milli hótelsins og golfvallarins.
Ferjusigling í heimleiðinni með m/s Eckerö. Morgunverðarhlaðborð í ferjunni.
Rútuferð til Arlanda fyrir flugið heim.
Þrír kvöldverðir og sex hádegisverðir með drykki á Álandseyjum.
Íslensk farastjórn. Farastjóri er Per Ekström.


Ekki innifalið:

Ferðatrygging
Akstur á Íslandi (Keflavík)
Golfkilfur og -búnaður (taka með í fluginu er innifalið)
Golfbíll (hægt að leigja, 55 € per bíl og dag, 2ja manna bíll)

 Hótel Arkipelag

Fjögurra stjörnu hótel í miðbænum. Hótellið er með flottan veitingastað, næturklúbbi, sauna og sundlaug (frítt fyrir hótelgesti kl. 17 – 19). Öll okkar herbergi eru með svalir og útsýni yfir smábátahöfnin og ströndina. Frítt WiFi og öryggishólf. Ísskápar í öllum herbergjum.

Tímabelti
Í september er sumartími á Álandseyjum og klukkan er þremur tímum á undan Íslandi. Svíþjóð er tveimur tímum á undan Íslandi.

 Gjaldmiðill
Álandseyjar tilheyra Finnlandi og notar EUR. Í Svíþjóð eru sænskar krónur.

Ítarupplýsingar

Dagsetning

10.9.2026 - 17.9.2026

Verð frá

459.000 ISK

Fjöldi

30

Staðfestingargjald

40.000 ISK

Greiðsludagur

Jul 10, 2026

Alandia

Travel Service

Hafa samband

Heimilisfang

109 Reykjavík

Alandia

Travel Service

Hafa samband

Heimilisfang

109 Reykjavík

Alandia

Travel Service

Hafa samband

Heimilisfang

109 Reykjavík