Leyndardómar Suður-Afríku

Upplifðu það besta sem Suður-Afríka hefur upp á að bjóða. Tveggja vikna ferðalag sem tekur þig frá glæsileika Höfðaborgar, inn í hjarta villtrar náttúrunnar. Kannaðu stórbrotna strandlengju, heimsfræg vínhéruð og sjáðu „Stóru fimm“ í ógleymanlegu safarí.

Upplifðu það besta sem Suður-Afríka hefur upp á að bjóða. Tveggja vikna ferðalag sem tekur þig frá glæsileika Höfðaborgar, inn í hjarta villtrar náttúrunnar. Kannaðu stórbrotna strandlengju, heimsfræg vínhéruð og sjáðu „Stóru fimm“ í ógleymanlegu safarí.

No H4 headings found on this page

Ferðatímabil 21.11.-4.12.2026

Við upplífum það besta sem Suður Afríka hefur uppá að bjóða.

Í þessum tveggja vikna ferðalagi dveljum við í 8 daga á 4ra stjarna hóteli (The Hyde Hotel) í Höfðaborg , sem er talin vera ein þeirra fallegustu borga í heiminum. Við förum í skoðunarferðir til Cape Point og Góðrarvonahöfða, Stellenbosch, aðalstaður suður afrísku vínanna. Líka til Hermanus, þar sem við sneiðum hádegisverð og heimsækjum markað og skoðum mörgæsi. Við förum í skoðunarferð til Roben Island, þar sem Nelson MANDELA var í fangelsi í 18 ár.

Þar á eftir dveljum við í þrjá daga á Elephant Plains Game Lodge, þar sem við förum í safaritúra í Sabi Sand við Kruger Park.

Flogið frá Íslandi, millilending í London Heathrow, til Höfðaborgar. Heim er flogið frá Jóhannesarborg með millilendingu í London Heathrow og þaðan til Keflavíkur.

Verðið er 898.000 kr. (sjá betur fyrir neðan) á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. Valkostur er með ódýrari gistingu á Elephant Plains (870.000 kr.). Mikið innifalið: Flug, transfer frá og að flugvöllum erlendis, gisting á 4ra stjarna hóteli og á frumskógahóteli með öllum þægindum, skoðunarferðir, 3 hádegisverðir og 2 kvöldverðir í Höfuðborg, fullt fæði á frumskógarhótelinu.

Ferðin er farin í samstarfi við Martins Resor, sem er með ferðaskrifstofuleyfi og tryggingar. Alandía Travel Service er líka með ferðaskrifstofuleyfi á Íslandi. Martin Kähkönen, eigandi Martins Resor AB, verður með okkur alla daga sem farastjóri. Hann þekkir vel allt sem við ætlum að gera, þar sem hann hefur skipulagt ferðir og stjórnað samskonar ferðum í mörg ár. Hann dvelur reglulega í Suður Afríku og er vel kunnugur á svæðinu. Per verður leiðsögumaður á íslensku og með hópnum allan tímann.

Mikið innifalið: Flug, transfer frá og að flugvöllum erlendis, gisting á 4ra stjarna hóteli og frumskógahóteli með öllum þægindum, skoðunarferðir, 3 hádegisverðir og 2 kvöldverðir í Höfuðborg, fullt fæði á frumskógarhótelinu.

Ferðalýsingar 2026, 21.11.-4.12.2026

Dagur 1 (Lau. 21/11 2026):
Lagt verður af stað kl. 11:55 frá Keflavík og flogið til London Heathrow með British Airways.
Við höldum áfram frá London kl. 18:25 til Höfðaborgar (Cape Town) með British Airways. Við komum svo til Höfðaborgar kl. 08:05 á staðartíma þann 22/11. Tímabeltið þar er +2 klst. (tveimur tímum á undan Íslandi).

Dagur 2 (Sun. 22/11/2026):

Lent er kl. 8:05 í Höfðaborg og mun farastjórinn okkar Martin hitta okkur. Við förum með farangrinum að hótelinu okkar. Þar á eftir í skoðunarferð um borgina. Ef veðrið leyfir getum við farið í kláf upp á Table Mountain þaðan sem er einstakt útsýni. Við innritum okkur á The Hyde Hotel sem staðsett er í borgarhlutanum Sea Point, steinsnar frá Atlantshafinu. Hótelið verður okkar heimili næstu átta daga. Gist er í tveggja manna (eins manns) herbergjum og á er glæsileg sundlaug á þakinu á hótelinu með útsýni í allar áttir. Morgunmatur er innifalinn alla daga á meðan á dvöl stendur. Sameiginlegur kvöldmatur er þetta kvöld.

Dagur 3 (Mán. 23/11/2026):

Eftir morgunmat er farið í dagsferð til Cape Point og Góðrarvonarhöfða. Á leiðinni skoðum við Hout Bay en þaðan tökum við bát og siglum um sker þar sem m.a. er hægt að skoða seli. Áfram er haldið til Chapmans Peak og Cape Point, en þar er þjóðgarður og þar er hægt að sjá Atlantshafið og Indverska hafið mætast í allri sinni dýrð.
Við borðum hádegisverð á Black Marlin Restaurant nálægt Cape Point. Stefnt er að því að koma aftur á hótelið seinnipartinn. Kvöldmatur á eigin vegum þennan dag.

Dagur 4 (Þri. 24/11/2026):

Þennan dag förum við í heimsókn til vínhéraðsins og borgarinnar Stellenbosch, sem er næst elsta borg Suður- Afríku. Við heimsækjum vínframleiðendur og smökkum að sjálfsögðu þeirra framleiðslu en þar verður hægt að kaupa ýmis úrvalsvín. Hádegisverður er snæddur á Lancerac Manor. På tillbakavägen stoppar vi vid Boschendal setrið með „beint frá býli“ vörur og sælkeranammi. Þar er líka kaffihús. Stefnt er að því að koma aftur á hótelið seinni part dags. Kvöldmatur á eigin vegum.

Dagur 5 (Miðv. 25/11/2026):


Eftir morgunmat er haldið í dagsferð að Hermanus, en leiðin þangað er um tveggja klukkutíma rútuferð þar sem keyrt er strandveg meðfram Indverska hafsins. Hermanus er lítið þorp og þekktast fyrir að þar fyrir utan sést mikið af hvölum um 5 – 6 mánuði á ári, en við förum ekki í hvalaskoðun, þar sem það er ekki neitt sérstakt fyrir okkur Íslendingum. Við snæðum hádegisverð á hafnarsvæðinu skoðum verslunarmiðstöð og markað í Hermanus. Á leiðinni til baka er stoppað til að skoða mörgæsir. Reiknað er með að koma aftur á hótelið seinni part dags. Kvöldmatur á eigin vegum.

Dagur 6 (Fimmt. 26/11/2025):
Þennan dag er miðbærinn í Höfðaborg heimsóttur. Við byrjum í Greenmarket Square, þar sem skemmtileg handverk eru til sölu auk annars. Þar á eftir frjáls tími. Engar máltíðir umfram morgunmatsins eru innifallnar þennan dag.

Dagur 7 (Fös 27/11/2026):
Þennan dag förum við og kynnum okkur mannlífið á fátækra svæði Höfðaborgar. Við heimsækjum leikskóla og gróðurstöð. Leikskólinn er byggður á frumkvæði heimafólksins og rekinn af „Uthando“ (=Love) samtökin. Þar hittum við starfsfólk og börn og styðjum verkefnið með okkar heimsókn. Einhver uppákoma gerist kannski. Reiknað er með að koma aftur á hótelið fljótlega eftir hádegið.

Um kvöldið snæðum við kvöldmat á veitingastaðnum GOLD en hann er dæmigerður suður-afrískur veitingastaður sem er með rétti á matseðlinum úr hefðbundnu Cape-Malay eldhúsi auk rétta víða frá Afríku en í boði er margrétta einstakur kvöldverður. Allir réttir verða kynntir fyrir gestum um leið og þeir eru bornir fram. Starfsfólkið er klætt í þjóðbúningum frá Vestur-Afríku og stemningin er einstök með trommusýningu - sannkallað matarsafarí.

Dagur 8 (Lau 28/11/2026):

Eftir morgunmat förum við í heimsókn til Robbeneiland, sem er frægust fyrir fangelsið þar sem Nelson Mandela var fangi i næstum 20 ár. Síðar lét hann breyta fangelsinu í minjasafn til þess að sýna hvernig harðstjórnin vann á meðan aðskilnaðarstefnan (apartheid) var við líði. Enn vinna þarna fyrrverandi fangar sem leiðsögumenn og sýna okkur m.a. fangaklefa Nelsons Mandela. Komið er til baka fljótlega eftir hádegið og þá er tilvalið að heimsækja verslunarmiðstöðina Waterfront.

Frjáls dagskrá þar á eftir þennan dag.

Dagur 9 (Sun. 29/11/2026):


Á þessum degi heimsækjum við Kirstenbosch grasagarðurinn og þar snæðum við hádegisverð. Á leiðinni til baka skoðum við minningareitin hans Cecil Rhodes.Reiknað er með því að koma aftur á hótelið um kl. 15.
Gott að pakka fyrir brottför næsta morgun!

Dagur 10 (Mán. 30/11/2026):
Nú er kominn tími til að færa sig út úr höfuðborginni og út í eyðimörkina. Eftir morgunmat skráum við okkur út af hótelinu og höldum út á flugvöll, kl. 08 um morgunin. Þaðan fljúgum við fyrst til Nelspruit og þaðan til Elephant Plains Game Lodge í Sabi Sand Wildruin þar sem við dveljum næstu þrjá sólarhringana og fáum að upplifa bæði frumskóginn og eyðimörkina. Hótelið er á svæði sem er partur af Sabi Sand, sem er eitt af frægustu eyðimerkursvæðum heimsins. Svæðið er líka nálægt Kruger Park en allt þetta svæði er á stærð við Belgíu.

Hér er einstakt tækifæri til þess að upplifa dýralíf og náttúru. Gist er í nútímalegum litlum húsum með öllum þægindunum. Við snæðum hádegisverð við komuna og um kl. 16 er farið í ökuferð á Land Cruiser jeppum inn á þetta svæði sem er alls um 4000 hektarar. Vonandi sjáum við „the Big Five“ (sem eru fílar, nashyrningar, buffalóar, ljón og hlébarðar). Þess utan er fjöldi annara dýra sem er upplifun að sjá.
Eftir ferðina borðum við kvöldverð á hótelinu, undir berum himni ef veður leyfir. Það er einstakt að borða úti undir stjörnubjörtum himni og hlusta á fjölbreytt hljóð dýra allt í kring.

Dagur 11 (Þri. 1/12/2026):
Við byrjun daginn snemma og verðum því vakin kl. 05:00 og fáum okkur léttan morgunverð. Við förum snemma af stað og reynum að sjá dýrin ganga að vatnsbólunum um morguninn. Við höldum aftur til baka á hótelið og  snæðum morgunverð.
Eftir morgunverðinn er í boði að fara gangandi með leiðsögumanni og tekur það um klukkutíma. Einnig er hægt að njóta útsýnis, fara í sundlaugina eða skella sér í heilsuræktina fram að hádegisverði klukkan 14
Klukkan 16 er lagt af stað í kvöldferð í eyðimörkina. Kvöldverður verður á hótelinu.

Dagur 12 (Miðv. 2/12/2026):
Í dag eru tvær ferðir í boði inn í eyðimörkina en þeir sem vilja geta líka eytt deginum á hótelinu.

Dagur 13 (Laug. 3/12/2026):
Við vöknum snemma og tökum morgunferð í eyðimörkina í þriðja og síðasta skiptið. Eftir það pökkum við í töskurnar og kveðjum hótelið. Rúta sækir okkur en ferðalagið til Jóhannesarborgar tekur um 8 klst. Við stönsum á leiðinni fyrir hádegis- og kaffihlé.

Flogið verður um kvöldið kl. 22 frá Jóhannesarborg og til London Heathrow og lendum þar 07:25 næsta dag.

Dagur 14 (Sun. 4/12/2026):
Við lendum 07:25 á Heathrow. Brottför til Keflavíkur er 13:50 og við lendum þar kl. 17:15 á íslenskum tíma.

Heildarverð er 898.000 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi.
Verð í eins manns herbergi er 995.000 kr.  
Valkostur er að panta aðeins ódýrari gisting í svo kölluðu Rondavels á Elephant Plains Lodge.  Þau hús er líka með glæsileg herbergi og flott rúm með baði, en aðeins einfaldari inréttingar. Dagskráin að öðru leyti er alveg eins og hjá hinum í hópnum. Heildarverðið með Rondavels gistingu er 870.000 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi.
Staðfestingargjaldið, 90.000 kr., greiðist víð bókun, afgangurinn 15.9.2026.

Við afbókun fyrir 15.9.2026 endurgreiðist staðfestingagjaldið og allt sem hefur verið greitt inn, nema 30.000 kr., sem er kostnaður vegna umsýslu.
Eftir 15.9.2026 fæst engar endurgreiðslur.
Farþegar eru því beðnir um að hafa ferðatryggingu ef til forfalls kemur eftir 15.9.2026.

Athugið að ferðinni gæti verið aflýst ef nægjanleg þátttaka næst ekki eða vegna almennra ferðatakmarkanna frá yfirvöldum á þeim svæðum sem við ferðumst til. Full endurgreiðsla fæst ef til ofangreindra atriða kemur.

Innifalið

  • Áætlunarflug með British Airways frá Keflavík til London Heathrow og áfram til Höfðaborgar á leiðinni út og Jóhannesarborg – London Heathrow – Keflavík á leiðinni heim.

  • Innanlandsflug Höfðaborg – Nelspruit.

  • Einkaflugvél Nelspruit – Elephant Plains Lodge.

  • Rútuferð Elephant Plains – Jóhannesarborg

  • Gisting í tveggja manna herbergjum á Hyde Hotel og í húsum á Elephant Plains Lodge.

  • Transfer frá og að flugvöllum erlendis.

  • Þrír hádegisverðir og tveir kvöldverðir með vín, bjór eða gos í Höfðaborg. Fullt fæði á Elephant Plains Lodge.

  • Skoðunarferðir samkvæmt ferðalýsingum.

  • Íslenskumælandi farastjóri og farastjóri frá Martins Resor sem er staðkunnugur.

Ekki innifalið

  • Þjórfé (100 €, u.þ.b. 15.000 kr.) til starfsmanna hótelanna, bílstjóra og starfsmanna á Elephant Plains Lodge. Farastjóri Martins Resor innheimtar féð og greiðir.

  • Ferðatryggingar

  • Bólusetningar (tékka með heilsugæsluna)

Verð er samkvæmt gengisskráning janúar 2026. Verðið er líka með fyrirvara um aukakostnað vegna bólusetninga og heilsuskoðunar ef þess er krafist af yfirvöldum.

Með fyrirvara um breytingar í dagskránni, þar sem farastjórinn getur fært hluta til milli liða.  


Ítarupplýsingar

Dagsetning

21.11.-4.12.2026

Verð frá

870.000 kr.

Fjöldi

20

Staðfestingargjald

90.000 kr.

Greiðsludagur

Sep 1, 2026

Alandia

Travel Service

Hafa samband

Heimilisfang

109 Reykjavík

Alandia

Travel Service

Hafa samband

Heimilisfang

109 Reykjavík

Alandia

Travel Service

Hafa samband

Heimilisfang

109 Reykjavík