
Golf á Álandseyjum
🌾 Golf á Álandseyjum 2026
Dagsetningar: 10. – 14. september 2026
Viðburður: 3 golfhringir á fallegu Kastelholm vellinum (tveir 18 hóla brautir) 11., 12. & 13. sept.

Hér er hlýtt haust og oft fallegt veður. Ekki er það verra að spila golf á frægu golfvellinum í Kastelholm. Þar eru tvær brautir, Slottsbanan og Kungsbanan. Þessar brautir eru talin vera meðal þeim bestu í Finnlandi. Slottsbanan hefur verið sögð að vera besti golfvöllur í landinu.
Í þessi ferð er í boði að spila á þeim báðum.
Golfvöllurinn er í umsjón Ålands Golfklubb (www.agk.ax)
Við fljúgum 10. sept. með Icelandair til Stokkhólms, Arlanda. Rúta ekur okkur til Stokkhólms þar sem við siglum með lúxusferjunni „Gabriella“. Við siglum í skerjagarðinum frá Stokkhólmi og sneiðum kvöldverð um borð með vín og bjór úr krana. Við njótum svo skerjagarðsumhverfisins og tax free búðarinnar i ferjunni og komum til Maríuhafnar rétt fyrir miðnætti.
Við gistum alla nætur á 4* hótelinu Arkipelag (www.hotellarkipelag.ax) með morgunmat.
Á næstu þremur dögum er spilað golf. Fyrir fram bókaðir tímar alla daga. Hádegismatur á veitingahúsinu. Léttir drykkir innifaldir. Rúta keyrir okkur milli hótelsins og golfvallarins.
Um kvöldið er kvöldmatur á veitingahúsum. Drykkir innifaldir.
Heimferð 14. sep. með ferju til Svíþjóðar og rútu til Arlanda. Flug með Icelandair til Keflavíkur.
Ferðalýsingar:
Fimmtudagur 10/9 (1. dagur)

✈️ Ferðadagur 1 – Brottför og komutími til Álandseyja
Kl. 07:35 – Brottför frá Keflavík með Icelandair til Stokkhólms (Arlanda)
Rúta bíður á flugvellinum og ekur hópinn til Stokkhólms
Ef tími leyfir: Stutt borgarskoðun í Stokkhólmi
Sigling til Maríuhafnar með glæsiskipi
Um borð: Kvöldverður (hlaðborð) með drykkjum (gos, bjór, léttvín)
Rútan fylgir hópnum alla leið og farangur geymdur í rútunni
Komutími til Álandseyja: Rétt fyrir miðnætti á staðartíma
Innritun á Hótel Arkipelag í Maríuhöfn
Hótel Arkipelag er 4* hótel í miðbæ Maríuhafnar og er með veitingahús, næturklúbbi, sauna og sundlaug. Öll okkar herbergi er með útsýni yfir smábátahöfnin og ströndina.
Föstudagur 11/9 (2. dagur)
Rútan sækir okkur eftir morgunmat og við förum í stutta skoðunarferð í borginni og nágrenni áður en rútan ekur okkur að golfvellinum í Kastelholm. Þar tékkum við okkur inn, en sneiðum hádegisverð áður en leikurinn hefst.
Frá kl. 12:30 erum við með golftíma kl. 12:30/ 12:40/ 12:50/ 13:00 /13:10. Ein golfumferð er ca. 4,5 klst.
Þegar við komum til baka til Maríuhafnar er frjáls tími til að skoða miðborgina. Á hótelinu stendur okkur til boða að fara í sauna og sundlaug á hótelinu milli kl. 17 og 19.
Um kvöldið sneiðum við kvöldverð á hótelinu.
Laugardagur 12/9 (3. dagur)
Eftir morgunmat halda golfævintýrunum áfram og við erum með golftímar fráteknir kl. 10:00 – 10:45 (á níu mínútna fresti). Eftir að golfhringnum hefur verið klárað verður hádegisverður ca. kl. 15 á golfveitingastaðnum.
Við komum til baka á hótelið um kl. 17 og þá er aftur möguleiki að fara í sauna og sundlaug á hótelinu.
Kvöldverður á veitingastað rétt hjá hótelinu.
Sunnudagur 13/9 (4. dagur)
Eftir morgunmat förum við í þriðja skiptið að golfvellinum frá hótelinu erum með golftímar fráteknir kl. 10:00 – 10:45 (á tíu mínútna fresti). Eftir að golfhringnum hefur verið klárað verður hádegisverður ca. kl. 15 á golfveitingastaðnum. Við komum aftur á hótelið um kl. 17.
Milli kl. 17 og 19 er hægt að fara í saunu og sund á hótelinu, sem er í boði fyrir hótelgesti.
Flottur kvöldverður (kannski tækifæri að klæða sig aðeins upp) bíður okkar á Restaurant Nautical. Kvöldverðurinn er þriggja rétta hátíðamáltíð með drykki. Rúta ekur okkur báðar leiðir.
Gott að gera upp við hótelið ef einhver skuld væri, þar sem við förum á brott snemma næsta dag.
✈️ Ferðadagur Mánudagur 20/9 (5. dagur)
Heimfarardagur. Við gætum fengið eitthvað smá í morgunmat á hótelinu, en við borðum svo alvöru morgunmat á ferjunni. Brottför frá hótelinu kl. 07:00 með rútu sem ekur okkur til ferjuhafnarinnar í Berghamn. Ferjan fer af stað kl. 8 og við förum beint upp í morgunverðarhlaðborð í ferjunni. Eftir 2ja tíma sigling komum við til Grisslehamn í Svíþjóð kl. 9 á sænskum tíma. Rútan fer með okkur til Arlanda og flugvélin fer í loftið kl. 13:50. Við lendum í Keflavík kl. 14:40.
Verð: 320.000 ISK á mann miðað við 2ja manna herbergi. (Eins manns herbergi: 370.500 ISK).
Fyrir ferðafélaga, sem ætla ekki að spila golf og sem ætla að eyða tímanum á eigin vegum í borginni, lækkar verðið um 55.000 kr. á mann.
40.000 kr. á mann greiðist við bókun og afgangurinn fyrir 10.7.2026.
Verðið er miðað við gengið í janúar 2026. Við gengisbreyting > 5% er verðið með fyrirvara um gengisleiðréttingu á útistandandi upphæð.
Við afbókun fyrir 1.7.2026 endurgreiðist staðfestingargjaldið og allt sem hefur verið greitt inn á ferðina, nema 10.000 kr. sem er haldið eftir fyrir umsýslukostnað. Eftir 1.7.2026 fæst ekkert endurgreitt. Mælt með að ferðalangar hafa ferðatryggingu til að dekka ferðakostnað við forfall með stuttumí fyrirvara.
Innifalið:
Flug með Icelandair frá Keflavík til Stokkhólms (Arlanda) og til baka.
Rútuferð frá Arlanda, útsýnisferð um Stokkhólm, akstur til hafnarinnar í Stokkhólmi og með ferju til Álandseyja. Rútan fylgir okkur alla leið og farangurinn má vera í rútunni allan tímann. Kvöldverðarhlaðborð í ferjunni m/s Gabriella með drykki. Siglingin er ca. 5,5 klst. í stóru og flottu skipi. Tax free sala á áfengi, snyrtivörur og fleira.
Gisting á 4**** hótelinu Arkipelag í Maríuhöfn, fjórar nætur með morgunmat. Frítt í sauna og sundlaug fyrir hótelgesti milli kl. 17 og 19.
Golfgjöld í þrjá daga. Það er hægt að bóka gólfbíl (2ja manna rafmagnsbíll) og kostar hann 55 € á dag
Rútuferðir á Álandseyjum milli hótelsins og golfvallarins.
Ferjusigling í heimleiðinni með m/s Eckerö. Morgunverðarhlaðborð í ferjunni.
Rútuferð til Arlanda fyrir flugið heim.
Fjórir kvöldverðir og þrír hádegisverðir með drykki á Álandseyjum.
Íslensk farastjórn. Farastjóri er Per Ekström.
Ekki innifalið:
Ferðatrygging
Akstur á Íslandi (Keflavík)
Golfkilfur og -búnaður (taka með í fluginu er innifalið)
Golfbíll (hægt að leigja, 55 € per bíl og dag, 2ja manna bíll)
Hótel Arkipelag
Fjögurra stjörnu hótel í miðbænum. Hótellið er með flottan veitingastað, næturklúbbi, sauna og sundlaug (frítt fyrir hótelgesti kl. 17 – 19). Öll okkar herbergi eru með svalir og útsýni yfir smábátahöfnin og ströndina. Frítt WiFi og öryggishólf. Ísskápar í öllum herbergjum.
Tímabelti
Í september er sumartími á Álandseyjum og klukkan er þremur tímum á undan Íslandi. Svíþjóð er tveimur tímum á undan Íslandi.
Gjaldmiðill
Álandseyjar tilheyra Finnlandi og notar EUR. Í Svíþjóð eru sænskar krónur.
Ítarupplýsingar
Dagsetning
10.9.2026 - 14.9.2026
Verð frá
320.000 ISK
Fjöldi
30
Staðfestingargjald
40.000 ISK
Greiðsludagur
Jul 10, 2026






